Raunverð en og aftur

Raunverð er algjört bull. Í fyrsta lagi þá breytir það engu fyrir einstakling sem við skulum kalla Guðmund hvað raunverð hluta er, ef laun hans standa í stað. Tökum sem dæmi:

Guðmundur ætlar að kaupa sér íbúð árið 2007, hann finnur sér íbúð við hæfi og hún kostar 30 milljónir, hann sér að á hans launum t.d. 200 þúsund eftir skatta hefur hann ekki efni á að borga af 30 milljóna eign. Hann ákveður að bíða með að kaupa um sinn. 2009 er efnahagskreppa búin að riða yfir landið og í fréttum er endalaust talað um að verð/raunverð á íbúðum hafi lækkað gríðarlega. Guðmundur fer að stað og viti menn sama íbúð er á sölu og kostar enn 30 milljónir en hefur að raunverði lækkað um t.d. 20%. Guðmundur er ennþá með 200 þúsund útborgað þar sem hann fær ekki launahækkun sökun kreppu. Þessi raunverðs lækkun á íbúðum skiptir hann því engu máli þar sem hann hefur enn sömu laun. Hann hefur ef eitthvað er minna efni á að kaupa íbúðina þar sem að það ríkir óðaverðbólga og lánin sem hann getur tekið munu hækka um 10-15% á ári til að byrja með.

 Þar að auki þá er algjört bull að hægt sé að mæla verðbólgu með neysluverðsvísitölu, þarna rugla menn alltaf saman verðhækkunum við verðbólgu. Ólíkir hlutir þó þeir geti haldist í hendur. Verðbólga er þegar að peningamagn eykst, t.d. við aukna peninga prentun Seðlabanka Íslands. Þá rýrna verðmæti þeirra peninga sem voru áður í umferð og til að jafna út þá rýrnun verður hækkun á vöruverði. Til að einfalda þá getum við sagt að öll verðmæti í landinu Peganius ferhyrningur 3 sm * 3sm það búa 9 einstaklingar. Þeir ákveða að skipta verðmætunum jafnt á milli sín og búa því til 9 peninga, sem þeir kalla krónur, og fá allir 1 krónu. Ef þeir síðan ákveða að búa til 9 krónur í viðbót án þess að verðmæti á eyjunni þeirra hafi aukist þá verður verðbólga og það sem áður kostaði 1 krónu kostar nú 2 krónur þá sitja allir við jafnan hlut nema að einhver hafi verið óprúttin og stungið öllum nýju krónunum í eigin vasa (svoleiðis er reyndar oft gert, t.d. fjármagna Bandaríkjamenn stríð sín með peningaprentun). þetta er verðbólga. En ef Peganíus flytur einhverja vöru inn t.d. olíu frá Sádi Arabíu og þeir hækka verðið á henni þá verður ekki verðbólga í Peganíus heldur fá íbúar bara minni olíu fyrir peninginn. Þetta eru tvö ólík fyrirbrigði sem líta eins út á yfirborðinu.

Á Íslandi og víðar er verðbólga mæld með neysluverðsvísitölu sem mælir verðhækkanir á vörum og vilja menn nota hana til að mæla verðbólgu. En eins og sést á ofanverðu dæmi þá er það algjört bull. Niðurstaðan er sú að í landi þar sem neysluverðsvísitalan er notuð sem viðmiðun verðtryggingar fá fjármagnseigendur aukin arð frá skuldurum sínum í takt við verðhækkanir sama hvernig þær tilkoma. 

Einnig er því ekki hægt að segja að raunverð hafi breyst bara út af verðhækkunum það þarf að hafa komið til aukið peninga magn í umferð og til að raunverðsbreytingar skipti Guðmund einhverju máli þá þurfa laun hans að hafa hækkað líka út af sömu verðbólgu sem þau gera ekki á Íslandi.


mbl.is Raunvirði íbúða nú það sama og 2004
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Gísli Ingvarsson

Ég held að þetta sé bara ágætlega útskýrt hjá þér. Ástæðan fyrir því að verðbólga er mæld með neysluvísitölu er líklega sú að þannig hækkar verbótaþátturinn mest. Lántakendur geta fræðilega séð fjármagnað þetta kerfi á meðan verðhækkanir eru í lágmarki og krónukúrsinn hagstæður. En við öfgaaðstæður einsog núna er þetta fallítt. Millistéttin (við væntanlega) gátum sætt okkur við þetta á meðan við töldum lífeyrinum best borgið með verðtrygginarákvæðunum. Núna er komið annað hljóð í strokkinn. Forsenda afnáms verðbótaþáttarins skilst manni vera upptaka nýrrar myntar. Vill einhver gera það?

Gísli Ingvarsson, 18.11.2009 kl. 14:47

2 Smámynd: Víðir Hallgrímsson

Verðtryggingin er alltaf vond. Ótrúlegt hvað fólk er fljót að venjast vondu. Vertrygging er sér Íslenskt fyrirbæri samt erum við að ræða hvort hún eigi rétt á sér. Fáránlegt að mínu mati. Hún á að víkja ein tveir og þrír. Önnur mynt já segi ég en það er svo mikið bull að það verði að vera evra eða þá að við þurfum inn í ESB til þess að taka upp evrur (er ekki að taka afstöðu með eða á móti ESB).

Það er líka mjög sérstakt að vinstri stjórn skuli ekki afnema verðtryggingu á sama tíma og hún hækkar skatta. Besta leiðrétting sem væri hægt að gera á þeim ójöfnuði sem orðið hefur væri í gegnum afnám verðtryggingar þó það væri ekki nema frá og með deginum í dag. Þá væri líka hægt að hækka skatta án þess að fjármagnseigendur fái sneið af skattakökunni.

Víðir Hallgrímsson, 18.11.2009 kl. 16:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Víðir Hallgrímsson

Höfundur

Víðir Hallgrímsson
Víðir Hallgrímsson
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband